- Auglýsing -
- Auglýsing -

Olísdeild kvenna: Undanúrslit hefjast á laugardag – leikjadagskrá

Marta Wawrzykowska og Birna Berg Haraldsdóttir leikmenn ÍBV fagna, þó ekki í kvöld. Mynd/Kristján Orri Jóhannsson
- Auglýsing -

Fyrstu undanúrslitaleikir úrslitakeppni Olísdeildar kvenna fara fram á laugardaginn í Origohöll Valsara og í Vestmannaeyjum, á heimavelli deildarmeistara ÍBV. Annars vegar verður flautað til leiks klukkan 15 og hins vegar klukkan 16.40.

Valur mætir Stjörnunni og deildarmeistarar ÍBV kljást við Hauka.
Eftir laugardaginn rekur hver leikurinn annan þangað. Vinna þarf þrisvar sinnum til þess að komast í úrslit. Oddaleikur, þ.e. fimmta umferðin verður háð þriðjudaginn 9.maí. Þremur dögum síðar gera áætlanir ráð fyrir að fyrsti úrslitaleikurinn um Íslandsmeistaratitilinn fari fram.

Leikdagskrá undanúrslita

Laugardagur 29. apríl:
Origohöllin, Valur – Stjarnan, kl 15.
Vestmannaeyjar, ÍBV – Haukar, kl. 16.40.

Mánudagur 1. maí:
Ásvellir, Haukar – ÍBV, kl. 15.
TM-höllin, Stjarnan – Valur, kl. 16.40.

Miðvikudagur 3. maí:
Origohöllin, Valur – Stjarnan, kl 18.
Vestmannaeyjar, ÍBV – Haukar, kl. 19.40.

Laugardagur, 6. maí:
Ásvellir, Haukar – ÍBV, kl. 15.
TM-höllin, Stjarnan – Valur, kl. 16.40.

Þriðjudagur 9. maí:
Vestmannaeyjar, ÍBV – Haukar, kl. 18.
Origohöllin, Valur – Stjarnan, kl 19.40.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -