- Auglýsing -
- Auglýsing -

Önnur yfirlýsing handknattleiksráðs ÍBV: Þurfum sátt sem byggir á réttlæti

Mynd/Egill Bjarni Friðjónsson
- Auglýsing -

Fyrrverandi handknattleiksráð ÍBV, sem sagði af sér í morgun eins og kom fram á handbolta.is, sendi rétt í þessu frá sér aðra yfirlýsingu m.a. til handbolta.is. Kemur hún í kjölfar yfirlýsingar frá aðalstjórn ÍBV sem ekki hefur borist til handbolta.is og því ekki hægt að vísa til.

Í nýrri yfirlýsingu handknattleiksráðs ÍBV, sem barst fyrri nokkrum mínútum, er ekki gefinn þumlungur eftir eins og sjá má hér að neðan.


„Yfirlýsing frá fyrrum handknattleiksráði ÍBV Íþróttafélags


Þurfum sátt sem byggir á réttlæti.


Aðalstjórn ÍBV ÍÞróttafélags sendi frá sér yfirlýsingu um að ósætti ríki hjá handknattleiksráði félagsins um tiltekin mál sem hafa verið til skoðunar til fjölda ára. Hið rétta er að aðalstjórn tók þessa ákvörðun 15. mars sl. á grundvelli greinargerðar framkvæmdastjóra sem hefur verið hrakin að öllu leyti og stóðst enga skoðun og vissi ekki af gildandi reglum í félaginu á sama tíma. Þá hefur þetta mál ekki verið til skoðunar innan félagsins s.s af fulltrúaráði eða hinum almenna félagsmanni sem er rétti vettvangurinn.


Þá ætlar aðalstjórn að leggja fram tillögu að nefnd til úrlausnar þessa ágreinings á aðalfundi. Handknattleiksráð hefur ekki lagst gegn skipan nefndar um hvaða málefni sem er en krefst þess að aðalstjórn dragi til baka þessa ákvörðun áður en nefndir eru skipaðar enda augljóslega um ólögmæta og rangláta ákvörðun að ræða.


Aðalstjórn hefur ítrekað hafnað þessari beiðni handknattleiksráðs og hyggst nú reyna að troða sínu ranglæti í gegn á aðalfundi félagsins í skjóli þess að fá meirihluta þar.


Það sem liggur hins vegar skýrt fyrir og þarf enga nefnd þar til er að við í fyrrum handknattleiksráði ÍBV Íþróttafélags munum ekki starfa fyrir félagið nema á jafnréttisgrundvelli.


Okkar skilaboð til aðalstjórnar eru þau sömu og hafa verið. Dragið ákvörðunina til baka og síðan skulum við setjast niður.


F.h. fyrrum handknattleiksráðs ÍBV Íþróttafélags,


Grétar Þór Eyþórsson, fyrrum formaður.“

Fyrri yfirlýsingu handknattleiksráðs ÍBV síðan í morgun má lesa hér fyrir neðan.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -