- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Orfeus verður áfram í herbúðum HK

- Auglýsing -

Orfeus Andreou og HK hafa ákveðið að framlengja samstarf sitt. Andreou kom til HK í byrjun febrúar eftir að hafa verið helsta driffjöður handknattleiksins hjá Víði Garði um árabil.

Ekki kemur fram í tilkynningu HK til hversu langs tíma nýr samningur félagsins við Andreou nær. Hann skoraði 17 mörk í sjö leikjum með HK í Olísdeild karla á nýliðinni leiktíð.

„Orfeus hefur komið mjög sterkur inn í hópinn frá því hann gekk til liðs við HK og hefur fallið vel inn í bæði leik liðsins og liðsheildina. Það ríkir mikil ánægja innan félagsins með framlag hans til þessa,“ segir í tilkynningu HK í dag.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -