Orri Freyr Þorkelsson og samherjar hans í Sporting Lissabon unnu Benfica í uppgjöri höfuðborgarliðanna í úrslitakeppninni um portúgalska meistaratitilinn í handknattleik í gær, 37:28. Yfirburðir Sporting voru talsverðir í leiknum en liðið skoraði 23 mörk í fyrri hálfleik en fékk á sig 13.
Orri Freyr var markahæstur hjá Sporting með sjö mörk í níu skotum og hélt þar með vel upp á valið í landsliðið á föstudaginn fyrir leikina við Eistlendinga í næsta mánuði.
Vegna meiðsla var Stiven Tobar Valencia ekki með Benfica í leiknum.
Sporting hefur ekki tapað leik í portúgölsku deildinni eða í bikarkeppninni á leiktíðinni og varð fyrir skömmu deildarmeistari auk þess að vera komið í undanúrslit bikarkeppninnar.
Sporting hefur unnið tvær fyrstu viðureignir sínar í úrslitakeppninni um meistaratitilinn. Sama hefur gert meistari síðasta árs og einhverra ára á undan, Porto. Porto lagði ABC de Braga, 26:24, í Braga í gær.
Sporting sækir Porto heim á laugardaginn. Áður en að þeim leik kemur mæta Orri Freyr og félagar þýska liðinu Rhein-Neckar Löwen í 8-liða úrslitum Evrópudeildarinnar í Mannheim á þriðjudagskvöld.