- Auglýsing -
- Auglýsing -

Örvhent skytta frá Portúgal rekur á fjörur Eyjamanna

- Auglýsing -

Íslandsmeistarar ÍBV hafa orðið sér út um örvhenta skyttu frá Portúgal fyrir næstu leiktíð í Olísdeildinni sem á að fylla í eitthvað af því skarði sem Rúnar Kárason skildi eftir sig. Daniel Vieira heitir skyttan.

Hann kemur til ÍBV frá efstu deildarliðiðinu Avanca. Þar hefur hann leikið við góðan orðstír síðustu tvö ár, eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá ÍBV handbolta.

Vieira er 22 ára gamall er 194 sentímetrar á hæð og sagður vera kraftmikill.

„Við bindum miklar vonir við Daniel og hlökkum til að sjá hann á vellinum,“ segir m.a. í tilkynningu ÍBV.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -