- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Ótrúlegur endasprettur kom Króatíu í undanúrslit

Leikmenn króatíska landsliðsins ærðust af fögnuðu þegar þeir tryggðu sér sæti í undanúrslitum HM í kvöld. Ljósmynd/EPA
- Auglýsing -

Með ótrúlegum endaspretti tókst Króötum að vinna Ungverja með eins marks mun í fyrsta leik átta liða úrslita heimsmeistaramóts karla í Zagreb Arena í kvöld, 31:30. Króatar skoruðu fimm síðustu mörk leiksins. Sigurmarkið skoraði Marin Sipic af línu á síðustu sekúndu viðureignarinnar eftir að síðasta sókn Ungverja skilaði þeim ekki marki átta sekúndum fyrir leikslok.

Dagur Sigurðsson er þar með kominn með sína menn í undanúrslitaleik á heimavelli gegn annað hvort Frakklandi eða Egyptum sem eigast við í síðari leik átta liða úrslita í Zagreb Arena klukkan 20.

Undanúrslitaleik Króata og annað hvort Frakka eða Egypta verður á fimmtudagskvöld í Zagreb Arena.


Ungverjar, sem fengu einum hvíldardag meira en Króatar fyrir leikinn í kvöld, bíða áfram eftir að komast í undanúrslit á HM en þeir hafa ekki komist í undanúrslit síðan 1997 þegar þeir unnu íslenska landsliðið í átta liða úrslitum.

Krótar lentu hvað eftir annað tveimur til þremur mörkum undir í leiknum í kvöld. Þeim tókst ævinlega að koma til baka og jafna metin. Ævinlega tókst Ungverjum að ná yfirhöndinni á ný í afar spennandi leik að viðstöddum 16 þúsund áhorfendum í Zagreb Arena.

Dagur Sigurðsson hvetur sína menn til dáða í viðureigninni við Ungverja í kvöld. Ljósmynd/EPA

Staðan var jöfn í hálfleik, 16:16, eftir að Króatar höfðu skorað sex af síðustu átta mörkum hálfleiksins, þar af tvö með 19 sekúndna millibili í autt mark Ungverja sem freistuðu þess að leika með sjö menn í sókn þegar króatíska liðið var manni færra.

Snemma í síðari hálfleik tókst Króötum að komast marki yfir, 21:20. Þá tók við frábær sjö mínútna kafli ungverska liðsins sem náði fjögurra marka forskoti, 28:24, þegar 13 mínútur voru eftir. Áfram héldu Ungverjar að ráða lögum og lofum allt þar til rúmar fimm mínútur voru eftir. Ivan Pesic mætti í mark Króata á lokakaflanum og varði afar mikilvæg fjögur skot, þar af tvö úr opnum færum.

Filip Glavas var markahæstur í króatíska liðinu með sex mörk í sex skotum. Fyrrnefndur Sipic og Zvonimir Srna skoruðu fimm mörk hvor.

Örvhenta skyttan Zoran Ilic skoraði átta mörk og var markahæstur Ungverja. Gergö Fazekas og Bence Imre skoruðu fjögur mörk í röð.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -