Óvíst er hvað tekur við hjá landsliðsmanninum Bjarka Má Elíssyni í sumar þegar samningur hans við ungverska meistaraliðið One Veszprém rennur út. Félagið tilkynnti í gær, það sem legið hefur fyrir allt síðan í haust, að hann hyrfi á braut eftir fjögurra ára dvöl. Í svari til handbolta.is í morgun sagði Bjarki Már óvissu ríkja um hver hans næstu skref á handknattleiksferlinum verða. Hann hafi ekkert í hendi.
Síðustu viðureignir Bjarka Más með One Veszprém verða gegn Pick Szeged verða úrslitaleikir um ungverska meistaratitilinn sem fram eiga að fara 29. maí og 2. júní.
Margir stuðningsmenn One Veszprém skrifa athugasemdir við færslu félagsins þar sem tilkynnt er að Bjarki Már fái ekki nýjan samning við félagið og hverfi þar af leiðandi á braut. Ljóst er þegar gluggað er í athugasemdirnar að flestir sem skrifa athugasemdir eru ósáttir við þá ákvörðun félagsins að láta Bjarka Má sigla sinn sjó.
Bjarki Már hefur leikið í 13 ár utan Íslands með ThSV Eisenach, Füchse Berlin, Lemgo og nú síðast með One Veszprém. Bjarki Már hefur leikið 139 landsleiki og skorað 450 mörk.


