- Auglýsing -
- Auglýsing -

Pólverjar skelltu Suður Kóremönnum

Eftir tap fyrir Túnis í gær þá unnu Damian Przytula og félagar í pólska landsliðinu liðsmenn landsliðs Suður Kóreu í kvöld. Mynd/EPA
- Auglýsing -

Handknattleikslandslið Suður Kóreu, sem verður með íslenska landsliðinu í riðli á heimsmeistaramótinu sem hefst í næsta mánuði tapaði fyrir Pólverjum í annarri umferð á alþjóðlegu móti í Kraká í Póllandi í kvöld, 31:27. Suður Kóreumenn unnu Brasilíumenn örugglega í fyrstu umferð mótsins í gær, 28:22.


Pólverjar voru sterkari í leiknum frá upphafi til enda á heimavelli í kvöld og voru m.a. með þriggja marka forskot að loknum fyrri hálfleik, 17:14.


Landslið Túnis vann Brasilíu dag, 29:24, og hefur þar með fjögur stig eftir að hafa lagt Pólverja í gær, 32:31. Suður Kóreumenn mæta Túnisbúum í lokaumferðinni á morgun.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -