Um þessar mundir mega handknattleikslið á höfuðborgarsvæðinu ekki æfa saman vegna hertra sóttvarnareglna. Hinsvegar kemur það ekki í veg fyrir að leikmenn liðanna megi æfa einir. Handbolti.is sendi nokkrum leikmönnum þrjár léttar spurningar í ljósi stöðunnar. Ragnheiður Júlíusdóttir stórskytta Fram svaraði hiklaust.
Hvernig heldur þú þér í leikformi?
Ég reyni að æfa eins og ég get og borða næringaríkan og hollan mat. Samhliða því fylgist ég vel með meistaradeildinni þessa dagana, hjálpar meira en maður heldur að horfa á handbolta.
Æfir þú eftir prógrammi frá þjálfara þíns liðs?
Við í Fram æfum sjálfar – erum ekki með neitt uppsett prógram.
Æfir þú einu sinni á dag eða oftar?
Ég æfi einu sinni á dag.