- Auglýsing -
- Auglýsing -

Ragnheiður komin heim á nýjan leik

Ragnheiður Sveinsdóttir hefur klæðst búningi Hauka á nýjan leik. Mynd/Haukar
- Auglýsing -

Línukonan Ragnheiður Sveinsdóttir hefur ákveðið að snúa á ný heim til Hauka eftir tveggja og hálfs árs dvöl í herbúðum Vals þar sem hún varð m.a. bikarmeistari í vor. Ragnheiður hefur skrifað undir tveggja ára samning við Hauka en félagið sagði frá þessu tíðindum í gær.


Haustið 2020 sleit Ragnheiður krossband í hné og var ár frá keppni.


Ragnheiður lék sinn fyrsta meistaraflokksleik fyrir Hauka haustið 2010 þá 16 ára og stækkaði hlutverk hennar jafnt og þétt með árunum. Ragnheiður var orðin ein af lykilleikmönnum liðsins sem vann deildarmeistaratitilinn árið 2016.


„Það er því ánægjuefni að fá Ragnheiði heim á Ásvelli og verður gaman að sjá hana í Haukabúningnum á ný í haust,“ segir m.a. í tilkynningu handknattleiksdeildar Hauka.


- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -