- Auglýsing -
Rakel Sigurðardóttir einn af reynslumeiri leikmönnum Hauka leikur ekki með liðinu í Olísdeildinni fyrr en eftir áramót. Þetta staðfesti Gunnar Gunnarsson, þjálfari Hauka, við handbolta.is í dag.
Rakel fór meidd af leikvelli þegar nærri stundarfjórðungur var liðinn af viðureign Hauka og Vals á síðasta sunnudag. Ljóst var strax að meiðslin væru alvarleg. Síðar kom í ljós að Rakel er handarbrotin.
Til viðbótar hefur Karen Helga Díönudóttir ekki tekið þátt í tveimur síðustu leikjum, gegn Val og KA/Þór í gærkvöld. Hún er meidd á ökkla og er tvísýnt hvort hún verður með í leiknum við ÍBV á Ásvöllum á laugardaginn.
„Rakel og Karen er afar mikilvægir leikmenn fyrir okkur, jafnt í vörn sem sókn auk þess sem báðar búa yfir mikilli reynslu,“ sagði Gunnar Gunnarsson, þjálfari Hauka.
Haukar eru í fjórða sæti með fimm stig að loknum fimm leikjum í Olísdeildinni.
- Auglýsing -