- Auglýsing -
Rúmenski handknattleiksmaðurinn Viorel Bosca sem kom til liðs við Þór Akureyri í lok september á síðasta ári hefur samið við ítalska félagið Santarelli Cingoli sem leikur í Seria2. Félagið greindi frá þessu á dögunum og virðist allt vera klappað og klárt þar sem HSÍ hefur stimplað skiptin á heimasíðu sinni.
Bosca lék aðeins einn leik með Þór, gegn ÍBV 4. október og skoraði tvö mörk. Kom þar tvennt til, meiðsli og frestun á keppni á Íslandsmótinu fáeinum dögum eftir viðureign Þórs og ÍBV.
- Auglýsing -