RÚV ætlar að sýna báða vináttuleiki Egyptalands og Íslands í handknattleik karla sem fram fara á miðvikudag og föstudag í Kaíró. Hilmar Björnsson yfirmaður íþróttadeildar RÚV staðfesti þetta við handbolta.is í dag. Hilmar sagði RÚV hafa unnið að því undanfarnar vikur að senda leikina út. Enn sé beðið eftir svari frá Egyptum varðandi útsendingarmerki hjá leikjunum.
Leikirnir eiga að hefjast klukkan 13 að íslenskum tíma báða leikdagana.
Sá hluti íslenska landsliðshópsins sem ferðaðist frá Íslandi er kominn til Kaíró eftir því sem næst verður komist. Mjög hljótt hefur verið um ferðina á samfélagsmiðlum og fréttasíðu HSÍ. Ekki er vitað til þess að íslenskur fjölmiðill hafi slegist með í förina.
Reikna má með að þeir leikmenn sem voru að keppa með félagsliðum sínum í Evrópu í gær og í fyrradag komi einn af öðrum til egypsku höfuðborgarinnar í dag.
Ekki er vitað til þess að Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari hafi orðið að gera breytingar á leikmannahópnum sem hann valdi fyrir hálfum mánuði. Hópinn skipa:
Markverðir:
Viktor Gísli Hallgrímsson, FC Barcelona (85/2).
Jón Þórarinn Þorsteinsson, FH (0/0).
Ísak Steinsson, Drammen HK (3/0).
Aðrir leikmenn:
Arnar Freyr Arnarsson, MT Melsungen (118/123).
Bjarki Már Elísson, One Veszprém (137/445).
Einar Bragi Aðalsteinsson, IFK Kristianstad (2/0).
Einar Þorsteinn Ólafsson, HSV Hamburg (36/8).
Elvar Ásgeirsson, Ribe-Esbjerg (21/24).
Haukur Þrastarson, Rhein Neckar Löwen (58/80).
Jón Bjarni Ólafsson, FH (0/0).
Kristján Örn Kristjánsson, Skanderborg AGF (37/72).
Orri Freyr Þorkelsson, Sporting Lissabon (43/151).
Óðinn Þór Ríkharðsson, Kadetten Schaffhausen (69/215).
Reynir Þór Stefánsson, MT Melsungen (3/2).
Sigvaldi Björn Guðjónsson, Kolstad Håndball (88/233).
Teitur Örn Einarsson, Vfl Gummersbach (58/52).
Tryggvi Þórisson, Elverum Håndball (0/0).
Þorsteinn Leó Gunnarsson, FC Porto (27/41).



