- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

RÚV vonast til að geta sent út leikina við Egypta

- Auglýsing -

RÚV vonast til að geta sýnt báða vináttuleiki Egyptalands og Íslands í handknattleik karla sem fram fara á miðvikudag og föstudag í Kaíró. Enn sé beðið eftir svari frá Egyptum varðandi útsendingarmerki hjá leikjunum.

Fyrri viðureignin hefst klukkan 13 en sú síðari klukkan 16 á föstudag.

Sá hluti íslenska landsliðshópsins sem ferðaðist frá Íslandi er kominn til Kaíró eftir því sem næst verður komist. Mjög hljótt hefur verið um ferðina á samfélagsmiðlum og fréttasíðu HSÍ. Ekki er vitað til þess að íslenskur fjölmiðill hafi slegist með í förina.

Reikna má með að þeir leikmenn sem voru að keppa með félagsliðum sínum í Evrópu í gær og í fyrradag komi einn af öðrum til egypsku höfuðborgarinnar í dag.

Fréttin hefur verið uppfærð vegna þess að allt er í lausu lofti vegna útsendingana.


Ekki er vitað til þess að Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari hafi orðið að gera breytingar á leikmannahópnum sem hann valdi fyrir hálfum mánuði. Hópinn skipa:

Markverðir:
Viktor Gísli Hallgrímsson, FC Barcelona (85/2).
Jón Þórarinn Þorsteinsson, FH (0/0).
Ísak Steinsson, Drammen HK (3/0).
Aðrir leikmenn:
Arnar Freyr Arnarsson, MT Melsungen (118/123).
Bjarki Már Elísson, One Veszprém (137/445).
Einar Bragi Aðalsteinsson, IFK Kristianstad (2/0).
Einar Þorsteinn Ólafsson, HSV Hamburg (36/8).
Elvar Ásgeirsson, Ribe-Esbjerg (21/24).
Haukur Þrastarson, Rhein Neckar Löwen (58/80).
Jón Bjarni Ólafsson, FH (0/0).
Kristján Örn Kristjánsson, Skanderborg AGF (37/72).
Orri Freyr Þorkelsson, Sporting Lissabon (43/151).
Óðinn Þór Ríkharðsson, Kadetten Schaffhausen (69/215).
Reynir Þór Stefánsson, MT Melsungen (3/2).
Sigvaldi Björn Guðjónsson, Kolstad Håndball (88/233).
Teitur Örn Einarsson, Vfl Gummersbach (58/52).
Tryggvi Þórisson, Elverum Håndball (0/0).
Þorsteinn Leó Gunnarsson, FC Porto (27/41).

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -