- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Sá eftirsóttasti vill bara leika í heimalandinu

Marko Grgic í leik með þýska landsliðinu á HM í janúar. Ljósmynd/EPA
- Auglýsing -


Eftirsóttasti leikmaður þýsku 1. deildarinnar í handknattleik er ungstirnið Marko Grgic leikmaður Eisenach. Víst er að piltur verður ekki áfram í herbúðum Eisenach. Hann hefur hinsvegar engan áhuga á að fara til félags utan Þýskalands en vill gjarnan komast að hjá félagi sem á sæti víst í Meistaradeild Evrópu.

M.a. er Grigic sagður hafa afþakkað tilboð frá Barcelona og Pick Szeged. Einnig virðist ekki áhugi hjá honum fyrir að ganga til liðs við Hannover-Burgdorf í heimalandi sínu. Hannover-Burgdorf er sagt tilbúið að greiða Eisenach 550.000 evrur en sú upphæð heillar ekki Grigic.

Valið sagt standa milli tveggja

Þýskir fjölmiðlar segja að valið hjá Grigic standi á milli Flensburg og Füchse Berlin. Talsverðar líkur eru á að Berlinarliðið leiki í Meistaradeildinni á næstu leiktíð en meiri vafi leikur hvort Flensburg takst að öðlast sæti í keppninni enda í harðri keppni við fleiri lið á þeim vettvangi.

Sá markahæsti

Grigic, sem er 21 árs gamall, er markahæsti leikmaður þýsku 1. deildarinnar um þessar mundir með 218 mörk, 12 mörkum fleiri en Daninn Mathias Gidsel.

Af króatísku bergi brotinn

Grigic er af króatísku bergi brotinn. Foreldrar hans Danijel og Ina Grigic léku bæði handknattleik og m.a. var Danijel um skeið landsliðsmaður Króata. Hjónin festu rætur í Þýskalandi og Marko kom í heiminn meðan faðir hans var leikmaður Eisenach m.a. leiktíðina 2004/2005 undir stjórn Rúnars Sigtryggssonar.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -