- Auglýsing -
- Auglýsing -

Samdráttur en ríflegur hagnaður – HSÍ skuldlaust

Eva Björk Davíðsdóttir, Rut Arnfjörð Jónsdóttir, Harpa Valey Gylfadóttir, Helena Rut Örvarsdóttir og Ragnheiður Júlíusdóttir. Einnig sést í Ágúst Þór Jóhannsson, aðstoðarþjálfara gleðjast yfir góðum árangri. Mynd/EPA
- Auglýsing -

64. ársþing Handknattleikssambands Íslands, HSÍ, var haldið í dag og að þessu sinni fór það fram í gegnum fjarfundarbúnað sökum samkomutakmarkana.


Velta HSÍ á árinu var rúmlega 249 milljónir kr. sem er um 50 milljónum kr. lægri frá árinu á undan. Hagnaður ársins 2020 var rúmar 53 milljónir kr. Þetta er þriðja árið í röð sem sambandið skilar afgangi.

Aukinn kostnaður 2021

Aukinn afgangur skýrist aðallega af samdrætti í verkefnum 2020 sem að hluta hafa færst yfir á yfirstandandi ár auk þess sem mikið aðhald var í rekstri sökum Covid 19. Þá ríkir mikil óvissa með rekstrarárið 2021 þar sem aukinn kostnaður er við ferðalög og sóttvarnir og óvíst með verkefni yngri landsliða í sumar.
Sambandið stendur fjárhagslega vel og í fyrsta sinn um langt árabil er það skuldlaust.

Inga Lilja ný í stjórn

Endurkjörnir til næstu tveggja ára í stjórn sambandsins voru Guðmundur B. Ólafsson, formaður, Davíð B. Gíslason, varaformaður, Jón Viðar Stefánsson, markaðsnefnd, og Páll Þórólfsson, landsliðsnefnd karla. Inga Lilja Lárusdóttir var kjörin í stjórn og tekur við sem formaður fræðslu- og útbreiðslunefndar. Inga Lilja sat áður í varastjórn. Hún kemur í stað Magnúsar Karls Daníelssonar sem gaf ekki kost á sér.

Fyrir í stjórn eru Arnar Þorkelsson, gjaldkeri, Reynir Stefánsson, dómaranefnd, Kristín Þórðardóttir, mótanefnd, og Guðríður Guðjónsdóttir, landsliðsnefnd kvenna. Þau voru kjörin til tveggja ára á þinginu í fyrra.


Í varastjórn voru kjörin Alfreð Örn Finnsson, Guðmundur Þór Jónsson og Hrafnhildur Ósk Skúladóttir. Alfreð sat í varastjórn á síðasta ári en Guðmundur og Hrafnhildur koma ný inn.

Móta stefnu um kvennaboltann

Fimm lagabreytingar voru gerðar á þinginu en umræður voru líflegar og málefnalegar. Engar stórar breytingar voru gerðar á starfsemi sambandsins. Ársþing ákvað að fela stjórn HSÍ að skipa nefnd til að móta stefnu til framtíðar fyrir kvennahandboltann á Íslandi. Þá var uppfærð afreksstefna HSÍ samþykkt.


Alls tóku ríflega 70 manns úr handknattleikshreyfingunni þátt í fundinum sem gekk eins og best var kosið miðað við aðstæður, að sögn Róberts Geirs Gíslasonar framkvæmdastjóra HSÍ.

Skýrslu ársþingsins má finna í eftirfarandi slóð Arsskyrsla-2021-1.pdf (hsi.is).

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -