- Auglýsing -
- Auglýsing -

Sara íþróttamaður ársins – Aron og Bjarki í þriðja og fimmta sæti

Aron Pálmarsson hafnaði í þriðja sæti í kjöri íþróttamanns ársins 2020. Mynd/EPA
- Auglýsing -

Sara Björk Gunnarsdóttir, fyrirliði kvennalandsliðsins í knattspyrnu er íþróttamaður ársins 2020 hjá Samtökum íþróttafréttamanna. Niðurstaða kjörsins var tilkynnt í kvöld í sjónvarpsútsendingu RÚV. Tveir handknattleiksmenn voru á meðal tíu efstu í kjörinu. Aron Pálmarsson, Barcelona, hafnaði í þriðja sæti með 266 stig og Bjarki Már Elísson varð í fimmta sæti, fékk 155 stig.
Sara Björk fær nafnbótinu í annað sinn á ferlinum fyrst kvenna. Hún hlaut fullt hús stiga að þessu sinni eða 600 stig. Þetta er í tólfta sinn í 65 ára sögu kjörsins sem Íþróttamaður ársins er kosinn með fullu húsi stiga en viðkomandi er sá níundi sem afrekar það. Tuttugu meðlimir kusu árið 2009 þegar síðast var um fullt hús að ræða en sem fyrr segir kusu 30 að þessu sinni og hefur íþróttamaður ársins því aldrei fengið fullt hús frá jafnmörgum meðlimum Samtaka íþróttafréttamanna.

Bjarki Már Elísson landsliðsmaður hafnaði í fimmta sæti í kjöri íþróttmanns ársins 2020. Mynd/EPA

Alls fengu 25 íþróttamenn atkvæði í kjörinu í ár. Þar af voru 15 karlar og 10 konur. Íþróttafólk frá níu mismunandi sérsamböndum innan ÍSÍ fengu stig í kjörinu í ár. Stigin í kjörinu má sjá sundurliðuð í réttri röð hér fyrir neðan.

Þrjátíu félagar eru í Samtökum íþróttafréttamanna þetta árið og tóku þeir allir þátt í kjörinu. Átta þeirra vinna fyrir Sýn, sjö þeirra hjá RÚV, fimm hjá Morgunblaðinu, þrír hjá Fotbolta.net, tveir hjá Fréttablaðinu, einn hjá 433.is, einn hjá handbolta.is, einn hjá Viaplay, einn hjá Símanum og einn hjá Kylfingi.is.

Hver íþróttafréttamaður setur tíu nöfn íþróttafólks á blað. Sá sem settur er í efsta sæti fær 20 stig, 2. sætið gefur 15 stig, 3. sætið 10 stig, 4. sætið 7 stig, 5. sætið 6 stig, 6. sætið 5 stig, 7. sætið 4 stig, 8. sætið 3 stig, 9. sætið 2 stig og 10. sætið á hverjum atkvæðaseðli gefur 1 stig. Í kjörinu á liði og þjálfara ársins eru sett þrjú nöfn á blað. Efsta sætið gefur 5 stig, 2. sætið 3 stig og 3. sætið 1 stig.

Íþróttamaður ársins 2020:

1. Sara Björk Gunnarsdóttir, fótbolti – 600
2. Martin Hermannsson, körfubolti – 356
3. Aron Pálmarsson, handbolti – 266
4. Anton Sveinn McKee, sund – 209
5. Bjarki Már Elísson, handbolti – 155
6. Glódís Perla Viggósdóttir, fótbolti – 126
7. Guðni Valur Guðnason, frjálsíþróttir – 106
8. Ingibjörg Sigurðardóttir, fótbolti – 84
9. Gylfi Þór Sigurðsson, fótbolti – 74
10.Tryggvi Snær Hlinason, körfubolti – 66
11.   Guðrún Brá Björgvinsdóttir, golf – 47
12.   Júlían J.K. Jóhannsson, kraftlyftingar – 23
13.   Hilmar Örn Jónsson, frjálsíþróttir – 15
14.   Alfons Samsted, fótbolti – 10
15.   Ásdís Hjálmsdóttir, frjálsíþróttir – 8
16.-17. Guðmundur Ágúst Kristjánsson, golf – 7
16.-17. Guðlaug Edda Hannesdóttir, þríþraut – 7
18. Berglind Björg Þorvaldsdóttir, fótbolti – 6
19.-21. Ísak Bergmann Jóhannesson fótbolti – 5
19.-21. Hlynur Andrésson, frjálsíþróttir – 5
19.-21. Steinunn Björnsdóttir, handbolti – 5
22.-23. Vigdís Jónsdóttir, frjálsíþróttir – 4
22.-23. Sveindís Jane Jónsdóttir, fótbolti – 4
24.-25. Hilmar Snær Örvarsson, íþróttum fatlaðra – 1
24.-25. Aron Einar Gunnarsson, fótbolti – 1

Þjálfari ársins:
1. Elísabet Gunnarsdóttir, fótbolti – 133
2. Arnar Þór Viðarsson, fótbolti – 55
3. Heimir Guðjónsson, fótbolti – 23
4. Þorsteinn Halldórsson, fótbolti – 23
5. Þórir Hergeirsson, handbolti – 20
6. Guðrún Ósk Ámundadóttir, körfubolti – 14
7. Jón Þór Hauksson, fótbolti – 6
8. Stefán Arnarson, handbolti – 1

Lið ársins:
1. Kvennalandslið Íslands í fótbolta – 148
2. 21 árs landslið Íslands í fótbolta – 84
3. Kvennalið Breiðabliks í fótbolta – 14
4.Kvennalið Fram í handbolta – 9
5.-6. Kvennalið Skallagríms í körfubolta – 7
5.-6. Karlalið Vals í fótbolta – 7
7.Karlalandslið Íslands í handbolta – 1

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -