- Auglýsing -
- Auglýsing -

Sárt tap hjá Íslendingatríói

Gunnar Steinn Jónsson er einn þriggja Íslendinga hjá Ribe-Esbjerg. Mynd/Ribe-Esbjerg/Photo-Andersen.dk
- Auglýsing -

Fredericia vann Íslendingaliðið Ribe-Esbjerg, 32:31, í hörkuleik liðanna sem fram fór á heimavelli Ribe-Esbjerg í kvöld. Leikmenn Fredericia skoruðu sigurmarkið á síðustu andartökum leiksins og hirtu þar með bæði stigin sem voru í boði.

Þar með höfðu liðin sætaskipti í dönsku úrvalsdeildinni. Fredericia færðist upp í 11. sæti deildarinnar en Ribe-Esbjerg tók við 12. sætinu í staðinn með þrjú stig að loknum sjö leikjum. Aðeins Lemvig og Ringsted eru fyrir neðan í töflunni, bæði án stiga.

Rúnar Kárason skoraði fimm af mörkum Ribe-Esbjerg í leiknum. Hann átti einnig sex stoðsendingar. Gunnar Steinn Jónsson skoraði einu sinni en Daníel Þór Ingason skoraði ekki mark en lét þeim mun meira til sín taka í vörninni. Svíinn Jonas Larholm  var markahæstur hjá Ribe-Esbjerg með 11 mörk.

Frederica var tveimur mörkum yfir í hálfleik, 15:13.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -