- Auglýsing -
Eftir tvo hörkuleiki við Sävehof, þar af einn sigur, þá steinlá Skara HF í þriðju viðureign liðanna í undanúrslitum úrslitakeppni sænsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik kvenna í dag, 41:24. Leikið var í Partille, heimavelli sænsku meistaranna.
Aldís Ásta Heimisdóttir lék afar vel fyrir Skaraliðið í dag þrátt fyrir allt. Hún skoraði sjö mörk. Því miður er engar upplýsingar að fá um stoðsendingar. Jóhanna Margrét Sigurðardóttir skoraði ekki mark í leiknum í dag.
Fjórða viðureign liðanna fer fram í Skara á þriðjudaginn. Takist Skara að vinna þá viðureign kemur til oddaleiks. Ef Sävehof vinnur næsta leik þá leikur liðið við Skuru eða Önnereds um sænska meistaratitilinn.
- Auglýsing -