- Auglýsing -
- Auglýsing -

Sekt vegna ámælisverðrar framkomu áhorfanda

Það er í mörg horn að líta hjá dómurum á handboltaleikjum og þeir ekki ævinlega par vinsælir meðal áhorfenda. Myndin tengist þó ekki beint umfjöllunarefni fréttarinnar að neðan. Mynd/J.L.Long
- Auglýsing -

Aganefnd HSÍ hefur úrskurðað að Handknattleiksdeild Harðar á Ísafirði skuli greiða 30.000 kr sekt vegna áhorfanda sem sýndi af sér ámælisverða og vítaverða framkomu á leika Harðar og Fjölnis 11. maí. Málið var tekið upp öðru sinni hjá aganefnd í vikunni eftir að henni hafði borist greinargerð frá Herði. Kvörtun hafði borist frá dómurum leiksins vegna framkomu áhorfandans sem hafði uppi hávær mótmæli gagnvart þeim á fyrrgreindum leik og eins að honum loknum.


Það er þó mat nefndarinnar að það sé „varhugavert að slá því föstu, eins og málið liggur fyrir nefndinni, að framkoman geti talist hættuleg gagnvart dómurum leiksins, í skilningi 17. gr. reglugerðar HSÍ um agamál.“

Eftirtalin mál lágu fyrir og voru tekin til úrskurðar á fundi aganefndar fyrr í vikunni en niðurstaðan var birt á miðvikudag:

  • Haraldur Björn Hjörleifsson leikmaður Aftureldingu U hlaut útilokun með skýrslu vegna grófs leikbrots í leik Afturelding U og ÍBV í 2.deild karla þann 19.5.2021. Dómarar meta að brotið falli undir reglu 8:5 b). Með tilvísun í 10. grein reglugerðar HSÍ um agamál er það niðurstaða aganefndar að ekki skuli aðhafst frekar vegna málsins en vakin er þó athygli á stighækkandi áhrifum útlokana vegna slíkra brota, skv. 2. mgr. 11. sömu reglugerðar.
  • Vilhelm Freyr Steindórsson leikmaður Selfoss hlaut útilokun með skýrslu vegna óíþróttamannslegrar hegðunar í leik Selfoss og Hauka í 3fl 1.deild karla þann 19.5.2021. Dómarar meta að brotið falli undir reglu 8:10 a). Með tilvísun í 1. mgr. 3. gr. sömu reglugerðar er málinu frestað um sólarhring. Aganefnd felur skrifstofu HSÍ að kynna viðkomandi félagi fram komna skýrslu og gefa því færi á að koma að athugasemdum í málinu áður en aganefnd tekur málið aftur fyrir á fundi sínum.
  • Björgvin Franz Hlynsson leikmaður ÍR hlaut útilokun með skýrslu vegna óíþróttamannsleg hegðunar í leik Fram og ÍR í 3fl karla 4.deild 20.5.2021. Dómarar meta að brotið falli undir reglu 8:6 a). Með tilvísun í 10. gr. reglugerðar HSÍ um agamál er það niðurstaða aganefndar að leikmaðurinn er úrskurðaður í eins leiks bann. Aganefnd vekur jafnframt athygli á stighækkandi áhrifum leikbanna, skv. 1. mgr. 11. gr. sömu reglugerðar.
  • Aðalsteinn Ernir Bergþórsson leikmaður Þórs hlaut útilokun með skýrslu vegna grófs leikbrots í leik Stjörnunnar og Þórs í Olís deild karla þann 24.5.2021. Dómarar meta að brotið falli undir reglu 8:9 f). Með tilvísun í 10. grein reglugerðar HSÍ um agamál er það niðurstaða aganefndar að ekki skuli aðhafst frekar vegna málsins en vakin er þó athygli á stighækkandi áhrifum útlokana vegna slíkra brota, skv. 2. mgr. 11. sömu reglugerðar.
  • Arnór Snær Óskarsson leikmaður Vals hlaut útilokun með skýrslu vegna óíþróttamannslegrar hegðunar í leik Vals og KA í Olís deild karla þann 25.5.2021. Dómarar meta að brotið falli undir reglu 8:10 d). Með tilvísun í 10. gr. reglugerðar HSÍ um agamál er það niðurstaða aganefndar að leikmaðurinn er úrskurðaður í eins leiks bann. Aganefnd vekur jafnframt athygli á stighækkandi áhrifum leikbanna, skv. 1. mgr. 11. gr. sömu reglugerðar.
  • Í skýrslu dómara eftir leik Harðar og Fjölnis í Grill66 deild karla þann 11.05.2021 kemur fram að áhorfandi leiks hafi haft uppi hávær mótmæli gagnvart dómurum leiksins á meðan leik stóð og eftir leik. Í samræmi við 4. mgr. 17. gr. reglugerðar HSÍ um agamál var Herði gefinn kostur á að skila inn umsögn vegna málsins. Samkvæmt 17. gr. fyrrnefndrar reglugerðar er aganefnd heimilt að sekta félög ef áhorfendur gerast sekir um vítaverða eða hættulega framkomu gagnvart m.a. dómurum leiks. Þó að framganga áhorfanda hafi sannarlega verið ámælisverð og vítaverð er að mati nefndarinnar varhugavert að slá því föstu, eins og málið liggur fyrir nefndinni, að framkoman geti talist hættuleg gagnvart dómurum leiksins, í skilningi 17. gr. reglugerðar HSÍ um agamál. Í ljósi atvika málsins, eins og þau birtast nefndinni, er það niðurstaða nefndarinnar að Hörður skuli greiða sekt að fjárhæð 30.000 kr.
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -