- Auglýsing -
Hægri hornamaðurinn Alexander Már Egan hefur samið við Fram til næstu tveggja ára. Alexander Már kemur til Fram frá Selfossi hvar hann hefur leikið á síðustu árum og var m.a. i Íslandsmeistaraliði Selfoss 2019.
Á síðasta vetri skoraði Alexander Már 52 mörk í 27 leikjum fyrir Selfoss í Olísdeildinni og í úrslitakeppninni.
Alexander Már er fimmti leikmaðurinn sem bætist í hópinn hjá Fram fyrir næsta keppnistímabil. Hinir eru Ívar Logi Styrmisson, Ólafur Brim Stefánsson, Luka Vikicevic og Marko Coric.
- Auglýsing -