- Auglýsing -
- Auglýsing -

Sextán leikmönnum verður teflt fram í Brno

Frá upphafi æfingar í keppnishöllinni í Brno í gær. Mynd/Ívar
- Auglýsing -

Ágúst Þór Jóhannsson og Gunnar Magnússon, landsliðsþjálfarar karla í handknattleik hafa valið þá 16 leikmenn sem mæta Tékklandi í kvöld í undankeppni EM 2024.


Valsmaðurinn Arnór Snær Óskarsson, sem kallaður var inn í hópinn á sunnudagskvöld, verður utan leikmannahópsins í kvöld.


Stiven Tobar Valencia leikur sinn fyrsta landsleik í kvöld og Bjarki Már Elísson klæðist landsliðstreyjunni í 100. sinn og Arnar Freyr Arnarsson í 80. skiptið.


Markverðir:
Björgvin Páll Gústavsson, Val (252/21).
Viktor Gísli Hallgrímsson, HBC Nantes (43/1).
Aðrir leikmenn:
Arnar Freyr Arnarsson, MT Melsungen (79/80).
Aron Pálmarsson, Aalborg Håndbold (164/634).
Bjarki Már Elísson, Telekom Veszprém (99/340).
Elliði Snær Viðarsson, Vfl Gummersbach (31/51).
Elvar Ásgeirsson, Ribe-Esbjerg (15/19).
Elvar Örn Jónsson, MT Melsungen (60/146).
Gísli Þorgeir Kristjánsson, SC Magdeburg (47/103).
Janus Daði Smárason, Kolstad Håndball (66/103).
Óðinn Þór Ríkharðsson, Kadetten Schaffhausen (24/81).
Sigvaldi Björn Guðjónsson Kolstad Håndball (57/156).
Stiven Tobar Valencia, Val (0/0).
Teitur Örn Einarsson, SG Flensburg-Handewitt (31/30).
Viggó Kristjánsson, SC DHfK Leipzig (41/97).
Ýmir Örn Gíslason, Die Rhein-Neckar Löwen (72/35).


Leikurinn fer fram í Brno í Tékklandi og hefst kl. 19.15. Hægt verður að sjá leikinn hjá RÚV og fylgjast með í textalýsingu á handbolti.is sem er með landsliðinu í för.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -