Mikið verður um dýrðir í KA-heimilinu í dag þegar deildarmeistarar KA/Þórs fá afhent sigurlaun sín fyrir sigur í Grill 66-deild kvenna eftir viðureign við Víkinga sem hefst klukkan 15. Rafmenn á Akureyri hafa ákveðið að bjóða Akureyringum á leikinn. Akureyringar geta þar með fjölmennt í KA-heimilið og hvatt liðin til dáða í leiknum og fagnað með KA/Þórsliðinu að leikslokum.
Auk þess sem aðgangseyrir verður enginn inn á leikinn þá stendur til að kveikja snemma upp í grillinum fyrir utan KA-heimilið og grillaðir úrvals hamborgarar sem seldir verða gegn vægu verði ásamt gosdrykkkjum.
Martha í goðsagnarhöll KA
Fleira skemmtilegt verður gert. M.a. verður Martha Hermannsdóttir tekin inn í goðsagnarhöll handknattleiksdeildar KA. Hún er fyrst í sögu KA/Þórs að vera tekin þar inn.
KA/Þór innsiglaði sæti sitt í deild þeirra bestu á nýjan leik um síðustu helgi með sigri á FH, 31:20. KA/Þór hefur unnið 13 leiki af 15 í deildinni og gert tvö jafntefli.