Ákveðið hefur verið að áhorfendur megi koma á kappleiki í íþróttum þegar að ný reglugerð heilbrigðisyfirvalda tekur gildi á fimmtudaginn. Það er breyting frá þeim tillögum sem kynntar voru í hádeginu í dag. Þar var farið eftir tillögum sóttvarnalæknis sem heimilaði ekki aðganga áhorfenda á íþróttaleiki.
Vísir greinir frá stakkaskiptunum. Eitthundrað áhorfendur mega vera í hverju hólfi á leikjum að uppfylltum ákveðnum reglum um fjarlægðamörk auk þess sem sæti áhorfenda verða númeruð og haldið saman skrá yfir áhorfendur.
Í fljótu bragði virðast reglurnar sem taka gildi nú vera svipaðar og þær sem voru í gildi fyrir 25. mars að því undanskildu að þá máttu að hámarki 200 sækja hvern leik að uppfylltum skilyrðum.