- Auglýsing -
- Auglýsing -

Steinunn bætir við tveimur árum með Fram

Steinunn Björnsdóttir landsliðskona og leikmaður Fram. Mynd/Hafliði Breiðfjörð
- Auglýsing -

Ein allra fremsta handknattleikskona landsins, Steinunn Björnsdóttir, landsliðskona og fyrirliði meistaraflokks Fram, hefur skrifað undir nýjan samning við félagið sem gildir til 2025. Steinunn, sem leikið hefur 46 landsleikir og skorað 60 mörk, er uppalinn Frammari og hefur undanfarin ár verið fastamaður í íslenska landsliðinu auk þess að vera einn mikilvægasti leikmaður Fram, jafnt í vörn sem sókn.

Spennandi tímar

„Fram er mitt félag og við stöndum á spennandi tímamótum núna. Liðið okkar hefur tekið miklum breytingum og við erum að opna liðið fyrir ungum og efnilegum leikmönnum. Það verður mjög gaman fyrir eldri og reynslumeiri leikmenn eins og mig, að fá inn ferskar ungar stelpur sem munu svo taka við keflinu þegar fram líða stundir. Þetta eru svakalega spennandi tímar og ég hlakka mikið til framhaldsins“ er haft eftir Steinunni í tilkynningu handknattleiksdeildar Fram

Einstakt ánægjuefni

Í sömu tilkynningu er haft eftir Einari Jónssyni sem tekur við þjálfun kvennaliðs Fram í sumar. „Það eru núna kynslóðaskipti í kvennaliði Fram. Það var því mikilvægt fyrir okkur að breyta hópnum en að sama skapi sérstaklega mikilvægt líka að halda í þá leikmenn sem við viljum móta nýtt lið eftir. Þar eru leikmenn eins og Steinunn fremstir í flokki, því hún hefur öll þau gildi, kraft og hæfileika sem við viljum að yngri leikmenn stefni að og tileinki sér. Það er því einstakt ánægjuefni að Steinunn skuli nú hafa skuldbundið sig til að fara í þessa vegferð með félaginu sínu.“

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -