Stjarnan vann Aftureldingu í fyrstu viðureign liðanna í úrslitum umspils Olísdeildar kvenna í handknattleik í kvöld, 27:25. Leikið var í Hekluhöllinni í Garðabæ. Næst mætast liðinu að Varmá í Mosfellsbæ á laugardaginn klukkan 16.
Vinna þarf þrjá leiki til þess að öðlast þátttökurétt í Olísdeild kvenna á næstu leiktíð.
Stjarnan var með yfirhöndina í leiknum í kvöld. Forskotið var þó ekki verulegt fyrr en tók að halla á fyrri hálfleik þegar Stjarnan náði góðum kafla. Þegar fyrri hálfleikur var að baki var Stjarnan sex mörkum yfir, 19:13.
Aftureldingarliðið lét ekki hug falla þótt staðan væri ekki góð eftir fyrri hálfleik. Liðið herti róðurinn, ekki síst í vörninni og skoraði Stjarnan aðeins átta mörk í síðari hálfleik. Aðeins dró saman með liðunum þó aldrei svo mikið að sigur heimaliðsins væri í hættu.
Mörk Stjörnunnar: Embla Steindórsdóttir 9, Eva Björk Davíðsdóttir 9, Anna Karen Hansdóttir 3, Guðmunda Auður Guðjónsdóttir 2, Brynja Katrín Benediktsdóttir 1, Hanna Guðrún Hauksdóttir 1, Hanna Guðrún Stefánsdóttir 1, Rakel Dórothea Ágústsdóttir 1.
Varin skot: Hrafnhildur Anna Þorleifsdóttir 12.
Mörk Aftureldingar: Hulda Dagsdóttir 9, Katrín Helga Davíðsdóttir 6, Anna Katrín Bjarkadóttir 2, Lovísa Líf Helenudóttir 2, Stefanía Ósk Engilbertsdóttir 2, Áróra Eir Pálsdóttir 1, Ísabella Sól Huginsdóttir 1, Ragnhildur Hjartardóttir 1, Úlfhildur Tinna Lárusdóttir 1.
Varin skot: Ingibjörg Gróa Guðmundsdóttir 6, Saga Sif Gísladóttir 2.
Tölfræði HBritara.