- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Stjarnan jafnaði metin – spenna í umspilinu

- Auglýsing -

Stjarnan jafnaði metin í einvíginu við Gróttu í umspili Olísdeildar kvenna í handknattleik í dag, 26:22. Staðan var 13:10 Stjörnunni í hag að loknum fyrri hálfleik. Leikið var í Hertz-höllinni á Seltjarnarnesi.

Hvort lið hefur þar með unnið einn leik en þrjá sigurleiki þarf til þess að vinna umspilið og eiga sæti í Olísdeildinni á næstu leiktíð. Næsta viðureign fer fram í Hekluhöllinni í Garðabæ á sumardaginn fyrsta. Flautað verður til leiks klukkan 18.


Stjarnan tók af skarið þegar á fyrri hálfleik leið og var með þriggja marka forskot í hálfleik. Framliggjandi vörn liðsins sló vopnin úr höndum Gróttuliðsins sem auk þess fór illa með góð marktækifæri þegar þau buðust.

Stjarnan var með eins til þriggja marka forskot allan síðari hálfleikinn. Gróttuliðið vantaði herslumun til að jafna metin. Margrét Einarsdóttir markvörður Stjörnunnar sá til þess meðal annars með prýðilegri frammistöðu.

Mörk Gróttu: Ída Margrét Stefánsdóttir 5, Þóra María Sigurjónsdóttir 5, Katrín S. Scheving Thorsteinsson 3, Lilja Hrund Stefánsdóttir 3, Elísabet Ása Einarsdóttir 2, Katrín Arna Andradóttir 2, Andrea Gunnlaugsdóttir 1, Hrafnhildur Hekla Grímsdóttir 1.
Varin skot: Andrea Gunnlaugsdóttir 9, Anna Karólína Ingadóttir 9.

Mörk Stjörnunnar: Natasja Hammer 9, Eva Björk Davíðsdóttir 6, Inga María Roysdóttir 5, Vigdís Arna Hjartardóttir 3, Hanna Guðrún Hauksdóttir 2, Rakel Dórothea Ágústsdóttir 1.
Varin skot: Margrét Einarsdóttir 17.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -