- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Stjarnan verður áfram á meðal þeirra bestu

- Auglýsing -

Stjarnan heldur sæti í Olísdeild karla. Það er staðreynd eftir þriðja sigurinn á Herði í úrslitum umspils Olísdeild í Hekluhöllinni í Garðabæ í kvöld, 40:32. Framlengja varð leikinn vegna þess að staðan var jöfn, 29:29, að loknum 60 mínútum. Hörður var marki yfir í hálfleik, 14:15. Eftir jafnan og spennandi síðari hálfleik skoraði Jose Esteves Lopes Neto jöfnunarmark Harðar, 29:29.


Þegar kom út í framlengingu féll Harðarmönnum allur ketill í eld. Stjarnan skoraði fimm af fyrstu sex mörkunum og lét sigurinn sér ekki úr greipum ganga. Ekki kom til greina að teygja einvígið á langinn með fleiri viðureignum.

Mörk Stjörnunnar: Ísak Logi Einarsson 10, Jóel Bernburg 7, Hans Jörgen Ólafsson 6, Tandri Már Konráðsson 5, Patrekur Þór Guðmundsson Öfjörð 4, Jón Ásgeir Eyjólfsson 3, Starri Friðriksson 2, Sigurður Dan Óskarsson 1, Matthías Dagur Þorsteinsson 1, Róbert Orri Arason 1.
Varin skot: Sigurður Dan Óskarsson 16.

Mörk Harðar: Jose Esteves Lopes Neto 8, Jhonatan C. R. Dos Santos 6, Shuto Takenaka 5, Guilherme Carmignoli De Andrade 3, Kei Anegayama 3, Petr Hlavenka 3, Axel Vilji Bragason 2, Pétur Þór Jónsson 2.
Varin skot: Stefán Freyr Jónsson 10, Hermann Alexander Hákonarson 3.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -