- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Stórsigur í lokaumferðinni – úrslitakeppni framundan

- Auglýsing -

Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði átta mörk og var með fullkomna skotnýtingu í stórstigi Kadetten Schaffhausen á RTV 1879 Basel, 45:29, í lokaumferð A-deildarinnar í Sviss í gærkvöld. Ekkert markanna skoraði Óðinn Þór úr vítaköstum.


Kadetten Schaffhausen varð deildarmeistari með 50 stig í 27 leikjum. HC Kriens-Luzern hafnaði í öðru sæti, sjö stigum á eftir Óðni Þór og samherjum.

Kadetten mætir GC Amicitia Zürich í átta liða úrslitum úrslitakeppninnar um meistaratitilinn. Fyrsta viðureignin verður háð miðvikudaginn 8. apríl.

Óðinn Þór varð fjórði markahæsti leikmaður A-deildarinnar með 179 mörk. Ante Gadze, leikmaður Wacker Thun, er markakóngur deildarinnar með 216 mörk.


Lokstaðan í A-deild karla í Sviss:

Standings provided by Sofascore
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -