Ekki er alveg uppselt á leik Hauka og ÍBV eins og sagt var frá í morgun eftir að ekki var lengur hægt að fá miða í gegnum miðsöluappið Stubb eftir stuðningsmenn ÍBV voru farnir að kaupa miða í Haukastúkunni. Stuðningsmenn Hauka eiga ennþá möguleika á að krækja sér í miða.
„Vegna fjölda fyrirspurna vill handknattleiksdeild Hauka taka fram: Iðkendur Hauka, VIP korthafar, Haukar í horni og ellilífeyrisþegar komast að sjálfsögðu að á leikinn á eftir. Þeir foreldrar og annað Haukafólk sem eiga enn eftir að tryggja sér miða mun geta keypt miða við innganginn,“ segir í orðsendingu sem handbolta.is barst fyrir stundu frá handknattleiksdeild Hauka.
Leikurinn hefst klukkan 19 á Ásvöllum en opnað verður fyrir svo kallað „fan zone“ á Ásvöllum klukkan 17.10. Þar verður hægt að kaupa mat og drykk eins og lyst er fyrir hendi.
Áhorfendur eru beðnir að mæta tímanlega á Ásvelli til þess að liðka fyrir afgreiðslu og aðkomu.
Það er mikil eftirspurn á leikinn og er orðið uppselt í miðasöluappinu Stubb 👏🏼
— Haukar – Handbolti (@Haukarhandbolti) May 29, 2023
Stuðningsmenn Hauka geta keypt lausa miða við inngang ~ Sú miðasala hefst um kl. 18:00🤾🏻♂️
📸 Kristján Orri Jóhannsson pic.twitter.com/XqeWSGpuL5