- Auglýsing -
Markvörðurinn Mina Mandić hefur samið við handknattleiksdeild Selfoss og mun verða góður liðsstyrkur fyrir baráttuna í Grill66 kvenna í vetur en Selfossliðið leikur undir stjórn Svavars Vignissonar.
Mandić er tuttugu og eins árs gömul og 173 sentímetrar á hæð og er frá Svartfjallalandi. Í heimalandinu lék hún í HC Levalea 2010 og lék á sínum tíma með U17 og U19 ára landsliðinu.
- Auglýsing -