Handknattleikskonurnar Karolina Olszowa og Marta Wawrzynkowska hafa gert nýjan eins ár samning við Handknattleiksdeild ÍBV. Báðar eru þær á sínu öðru tímabili með ÍBV-liðinu.
Olszowa hefur farið vaxandi í sóknarleik ÍBV á keppnistímabilinu auk þess að vaxa fiskur um hrygg við varnarleikinn. Hún hefur skoraði 16 mörk í 12 leikjum ÍBV-liðsins í Olísdeildinni.
![](https://www.handbolti.is/wp-content/uploads/2021/03/karolina-1024x683.jpeg)
Wawrzynkowska hefur varið að meðaltali tæp 11 skot í leik og með 36,5% hlutfallsvörslu í þeim 12 leikjum sem eru að baki Olísdeildinni.
„Þær hafa komið vel inn í liðið okkar ásamt því að hafa aðlagast lífinu í Eyjum vel. Við erum mjög ánægð með að hafa tryggt okkur krafta þeirra áfram næsta tímabil, hið minnsta,“ segir í tilkynningu handknattleiksdeildar ÍBV.