Ein breyting hefur orðið á íslenska landsliðshópnum sem mætir Ísrael í lokaumferð 4. riðils undankeppni EM í dag frá viðureigninni við Litáa í Vilnius á fimmtudaginn. Tandri Már Konráðsson kemur inn í hópinn í dag í stað Ýmis Arnar Gíslasonar sem kom ekki með íslenska hópnum til landsins frá Litáen af persónulegum ástæðum.
Guðmundur Þórður Guðmundsson hefur valið leikmennina 16 sem taka þátt í leiknum í dag sem fram fer í Schenkerhöllinni á Ásvöllum og hefst klukkan 16. Áhorfendum verður ekki heimilaður aðgangur að leiknum. Hægt verður að fylgjast með leiknum í beinni útsendingu RÚV.
Hópur Íslands gegn Ísrael er skipaður eftirtöldum leikmönnum:
Markverðir:
Ágúst Elí Björgvinsson, KIF Kolding (40/1)
Viktor Gísli Hallgrímsson, GOG (24/1)
Vinstri hornamenn:
Bjarki Már Elísson, TBV Lemgo Lippe (81/228)
Oddur Gretarsson, Balingen-Weistetten (28/37)
Vinstri skyttur:
Aron Pálmarsson, Barcelona (151/590)
Daníel Þór Ingason, Ribe Esbjerg HH (33/9)
Ólafur Andrés Guðmundsson, IFK Kristianstad (132/262)
Tandri Már Konráðsson, Stjörnunni (23/27)
Miðjumenn:
Elvar Örn Jónsson, Skjern (45/116)
Gunnar Steinn Jónsson, Göppingen (44/36)
Hægri skyttur:
Ómar Ingi Magnússon, SC Magdeburg (55/146)
Teitur Örn Einarsson, IFK Kristianstad (20/19)
Viggó Kristjánsson, Stuttgart (20/51)
Hægri hornamaður:
Sigvaldi Björn Guðjónsson, Vive Kielce (38/79)
Línumenn:
Arnar Freyr Arnarsson, MT Melsungen (62/76)
Sveinn Jóhannsson, SønderjyskE Håndbold (11/19)