- Auglýsing -
- Auglýsing -

Þeir sömu taka slaginn í dag og í Brno

Mynd/Hafliði Breiðfjörð
- Auglýsing -

Ágúst Þór Jóhannsson og Gunnar Magnússon landsliðsþjálfarar karla í handknattleik stilla upp sömu leikmönnum í síðari leiknum við Tékka í Laugardalshöll í dag og þeir tefldu fram í fyrri viðureigninni í Brno í Tékklandi á miðvikudagskvöldið. Valsarinn Arnór Snær Óskarsson verður áfram utan við keppnishópinn.


Leikurinn hefst klukkan 16 í Laugardalshöll og er fyrir löngu orðið uppselt.


Markverðir:
Björgvin Páll Gústavsson, Val (253/21).
Viktor Gísli Hallgrímsson, HBC Nantes (44/1).
Aðrir leikmenn:
Arnar Freyr Arnarsson, MT Melsungen (80/80).
Aron Pálmarsson, Aalborg Håndbold (165/635).
Bjarki Már Elísson, Telekom Veszprém (100/344).
Elliði Snær Viðarsson, Vfl Gummersbach (32/51).
Elvar Ásgeirsson, Ribe-Esbjerg (16/19).
Elvar Örn Jónsson, MT Melsungen (61/146).
Gísli Þorgeir Kristjánsson, SC Magdeburg (48/104).
Janus Daði Smárason, Kolstad Håndball (67/104).
Óðinn Þór Ríkharðsson, Kadetten Schaffhausen (25/82).
Sigvaldi Björn Guðjónsson Kolstad Håndball (58/157).
Stiven Tobar Valencia, Val (1/0).
Teitur Örn Einarsson, SG Flensburg-Handewitt (32/30).
Viggó Kristjánsson, SC DHfK Leipzig (42/104).
Ýmir Örn Gíslason, Die Rhein-Neckar Löwen (73/35).

Upphitun í Minigarðinum

Í tilkynningu frá HSÍ segir m.a.: Upphitun fyrir leikinn hefst á Minigarðinum, Skútuvogi 2 kl. 13. Sérsveitin stuðningssveit HSÍ mætir á svæðið og keyrir upp stemninguna, andlitsmálun verður í boði og 20% HSÍ afsláttur verður af öllum veitingum og minigólfi (nema öðrum tilboðum og pílunni) fyrir leik.

Krakkar sem mæta í Minigarðinn fá nammipoka frá Nóa Sírus meðan birgðir endast.

Logi Geirsson mætir í Minigarðinn kl. 14 og fer yfir leik Íslands og Tékklands.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -