Yfirvofandi eru þjálfaraskipti hjá handknattleiksliði Harðar á Ísafirði. Þarf það vart að koma á óvart eftir fregnir á dögunum um að Carlos Martin Santos, þjálfari Harðar síðustu fjögur ár, hafi litið í kringum sig, reyndar með leyfi félagsins. Snurða hljóp síðar á þráðinn svo ekkert varð úr hugsanlegum flutningi Santos til Vestmannaeyja. Virtust ekki allir vera á eitt sáttir.
Arnar Daði Arnarsson handknattleiksþjálfari og sérfræðingur segir á Twitter hafa heimildir, sem telja má nokkuð traustar, fyrir að Santos verði ekki áfram við stjórnvölin fyrir vestan.
Samkvæmt heimildum Sérfræðingsins mun Spánverjinn Carlos Martin Santos ekki þjálfa lið Harðar áfram. Samkvæmt sömu heimildum er Hörður langt komið í viðræðum við annan þjálfara og vonast menn fyrir vestan til þess að geta tilkynnt nýjan þjálfara í vikunni. #Handkastið pic.twitter.com/x2EdZiU5AP
— Arnar Daði (@arnardadi) July 23, 2023
Jafnframt kemur fram hjá Arnari Daða að stjórnendur Harðar sitji ekki með hendur í skauti. Þeir eru sagðir komnir vel á veg í viðræðum við þjálfara sem væntanlega verður kynntur til sögunnar á næstu dögum.
Hvað tekur við hjá Santos fylgir ekki sögunni.
Hörður féll úr Olísdeild karla í vor og leikur í Grill 66-deildinni á næstu leiktíð. Áfram er útlit fyrir vaska sveit handknattleiksmanna hjá Ísafjarðarliðinu og er stefnan sennilega sett á toppbaráttuna.