Þórður Tandri Ágústsson línumaðurinn sterki hefur framlengt samning sinn við Þór til ársins 2028. Hann kom til félagsins fyrir tveimur árum eftir þriggja ára veru hjá Stjörnunni. Þórður Tandri var mikilvægur hlekkur í Þórsliðinu sem hafnaði í 9. sæti Olísdeildar í vetur á sínu fyrsta tímabili í deildinni í fimm ár. Hann er ekki aðeins með betri línumönnum deildarinnar heldur er hann öflugur varnarmaður.
Þórður Tandri skoraði 70 mörk í 21 leik í Olísdeildinni í vetur.
Þórsarar ætla sér enn meiri hluti í Olísdeildinni á næstu leiktíð en í vetur sem leið. Auk þess að festa sem flesta leikmenn liðsins með nýjum samningum hefur Þór samið við tvo danska handknattleiksmenn, Mikkel Jensen og Oliver Christensen, eins og kom fram á dögunum.


