- Auglýsing -
Þórhildur Braga Þórðardóttir hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við handknattleiksdeild HK og leikur þar með í Olísdeildinni á næstu leiktíð eftir tveggja ára fjarveru. HK vann Grill 66-deildina í vor.
Þórhildur Braga er uppalin í HK en gekk í raðir Hauka árið 2017 og spilaði með þeim í nokkur ár eða til ársins 2021. Hún er fædd árið 1997 og hefur síðustu þrjú ár spilað með meistaraflokki HK.
Í tilkynningu HK segir m.a. að liðið sé að mestu byggt upp af ungum leikmönnum og hefur verið mikill styrkur fyrir þá að hafa reynslubolta eins og Þórhildi í liðinu.
- Auglýsing -


