- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Þorleifur Rafn söðlar um gengur til liðs við Víking

Þorleifur Rafn Aðalsteinsson. Mynd/Víkingur
- Auglýsing -

Handknattleiksdeild Víkings hefur gert tveggja ára samning við Þorleif Rafn Aðalsteinsson. Hann kemur til félagsins frá Fjölni. Þorleifur er 23 ára rétthentur leikmaður sem getur leyst flestar stöður á vellinum en hann lék upp öll yngri landslið Íslands. Þorleif Rafn hefur reynslu af því að leika í Olísdeildinni með Fjölni.

„Þorleifur var að margra mati besti leikmaður úrslitakeppninnar um sæti í Olísdeildinni sem Víkingar sigruðu eftirminnilega. Það lýsir svo sannarlega styrk leikmanns að skara fram úr þegar allt er undir. Hann var okkur Víkingum gríðarlega erfiður og því kærkomið að jafn öflugur leikmaður og hann hafi vistaskipti yfir í Víking.

Þorleifur býr yfir gríðarlegri áræðni, sprengikrafti og útsjónarsemi og mun því nýtast okkur Víkingur afar vel,“ segir í tilkynningu frá handknattleiksdeild Víkings.

Þorleifur Rafn er þriðji handknattleikskarlinn sem gengur til liðs við Víking á síðustu dögum. Hinir eru Stefán Scheving Th. Guðmundsson og Daníel Andri Valtýsson.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -