- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Þórsarar fyrstir í 16-liða úrslit bikarsins

Halldór Örn Tryggvason þjálfari Þórs og liðsmenn eru komnir í 16-liða úrslit bikarkeppninnar. Ljósmynd/Egill Bjarni Friðjónsson
- Auglýsing -


Þór Akureyri komst í kvöld í 16-liða úrslit í Poweradebikar karla í handknattleik eftir sigur á ÍBV2, 30:28, í Vestmannaeyjum. Fátt er annað vitað um leikinn fyrir utan að um var að ræða fyrsta leik í fyrstu umferð bikarkeppninnar í karlaflokki.

Víst er að Þór mætir ÍR í 16-liða úrslitum Poweradebikarsins í Höllinni á Akureyri. Að öllum líkindum fer viðureignin fram sunnudaginn 17. nóvember.

Þrír leikir í 32-liða úrslitum Poweradebikar karla eiga að fara fram á föstudaginn:
Kl. 18.10 – Hvíti riddarinn – Víkingur.
Kl. 19.30 – Víðir – Hörður – fer fram á Ísafirði.
Kl. 20 – ÍH – Selfoss.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -