Nýverið hafa þrír leikmenn kvennaliðs Hauka framlengt samninga sína við handknattleiksdeildina. Um er að ræða Birtu Lind Jóhannsdóttur, Ester Amíru Ægisdóttur og Rósu Kristínu Kemp.
![](https://handbolti.is/wp-content/uploads/2023/07/358413177_697944385677391_8567778355955482376_n-819x1024.jpg)
![](https://handbolti.is/wp-content/uploads/2023/07/357449492_697944382344058_3725179943369261136_n-819x1024.jpg)
![](https://handbolti.is/wp-content/uploads/2023/07/358376657_697944389010724_7750865615936673742_n-819x1024.jpg)
Birta Lind sem er 24 ára hefur undanfarin tímabil verið lykilmaður í Haukaliðinu þar sem hún hefur verið ein af mikilvægustu leikmönnum liðsins og hefur fest sig í sessi í vinstra horni liðsins.
Ester Amíra er 17 ára miðjumaður sem steig sín fyrstu skref í hópi meistaraflokks á liðnu tímabili ásamt því að vera lykilmaður í Íslandsmeistaraliði 3. flokks kvenna. Ester er hluti af U17 ára landsliði Íslands sem leikur í lokakeppni EM í ágúst.
Rósa Kristín er tvítugur fjölhæfur leikmaður sem getur leyst margar stöður á vellinum en hún hefur verið hluti af meistaraflokki Hauka undanfarin tímabil. Rósa er ein af þeim fjölmörgu uppöldu Haukastúlkum sem eru að koma upp í gegnum yngri flokka starf Hauka sem munu vera undirstaða meistaraflokks á komandi árum.
„Haukar fagna þessum tíðindum og hlakka til að sjá ungt og öflugt lið meistaraflokks kvenna verða enn betra á komandi tímabili,“ segir í tilkynningu.