- Auglýsing -
- Auglýsing -

Þrjátíu og fjórir dómarar og 13 eftirlitsmenn

Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson dómarar. Mynd/Eyjólfur Garðarsson
- Auglýsing -

Alls eru 34 dómarar á lista dómaranefndar HSÍ við upphaf keppnistímabilsins í meistaraflokkum karla og kvenna. Þeir voru 36 á sama tíma í fyrra. Þrettán eru skráðir eftirlitsmenn, jafnmargir og fyrir ári.


Magnús Kári Jónsson starfsmaður dómaranefndar segir að eins og undanfarin ár þá vanti sárlega dómara fremur en að þeir séu of margir. Mjög muni reyna á hópinn á keppnistímabilinu og ljóst að þegar mest verði um að vera megi fátt eða ekkert bera út af, s.s. eins og meiðsli eða veikindi.


Svavar Ólafur Pétursson er í hópi sjóuðustu dómara landsins og lætur sér þar af leiðandi ekki allt fyrir brjósti brenna. Mynd/Eyjólfur Garðarsson


Rúmenskur dómari er á meðal örfárra nýrra dómara á lista. Gherman Bodgan heitir hann og flutti til landsins fyrir nokkru. Bogdan hefur talsverða dómarareynslu frá Rúmeníu og á m.a. leiki í efstu deild.


Fáar konur hafa því miður gefið kost á sér til dómarastarfa hér á landi. Undanfarin tvö ár hafa Hekla Daðadóttir og Ellen Karlsdóttir dæmt talsvert, m.a. í Olísdeild kvenna. Ellen hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér til starf í vetur hvað sem seinna verður. Svipaða sögu er að segja um kvenfólk í eftirlitsstörfum. Kristín Aðalsteinsdóttir er eina konan á þeim lista eins og undanfarin ár.

Dómarar:

Anton Gylfi PálssonJónas Elíasson
Arnór Jón SigurðssonMagnús Björnsson
Árni Snær MagnússonÞorvar Bjarmi Harðarson
Árni Þór ÞorvaldssonDrengur Arnar Kristjánsson
Bjarki BóassonGunnar Óli Gústafsson
Bjarni ViggóssonJón Karl Björnsson
Gherman BodganGuðbjörn Ólafsson
Bóas Börkur BóassonHörður Aðalsteinsson
Eyþór JónssonLeó Snær Róbertsson
Hallgrímur JónssonVilbergur Flóvent Sverrisson
Hekla DaðadóttirRichardo Xavier
Ingvar GuðjónssonSigurjón Þórðarson
Magnús Kári JónssonÓmar Örn Jónsson
Ólafur Víðir ÓlafssonVilhelm Gauti Bergsveinsson
Ramunas MikalonisÞorleifur Árni Björnsson
Sigurður Hjörtur ÞrastarsonSvavar Ólafur Pétursson
Siguróli Magni SigurðssonSævar Árnason

Eftirlitsmenn:

Einar Sveinsson
Gísli H. Jóhannsson
Guðjón L. Sigurðsson
Hlynur Leifsson
Jóhannes Runólfsson
Kristján Halldórsson
Kristján Gaukur Kristjánsson
Kristín Aðalsteinsdóttir
Ólafur Örn Haraldsson
Reynir Stefánsson
Sigurður Egill Þorvaldsson
Sindri Ólafsson
Valgeir Egill Ómarsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -