Nýliðar þýsku 1. deildarinnar, Lübbecke og HSV Hamburg, gerðu liðum íslenskra handknattleiksmanna skráveifu í leikjum dagsins. Úrslitin eru sem hér segir:
Hannover-Burgdorf – Bergischer 28:20.
Arnór Þór Gunnarsson skoraði 1 marka Bergischer.
TuS N-Lübbecke – Balingen-Weilstetten 33:27.
Daníel Þór Ingason skoraði ekki mark fyrir Balingen. Oddur Gretarsson er frá keppni vegna endurhæfingar eftir aðgerð á hné í sumar.
HSV Hamburg – Rhein-Neckar Löwen 32:27.
Ýmir Örn Gíslason lék með RN-Löwen en skoraði ekki mark úr tveimur tilraunum. Hann tók virkan þátt í varnarleiknum.
Kiel – Flensburg 33:23.
Staðan:
Standings provided by SofaScore LiveScore