- Auglýsing -
- Auglýsing -

Þýskaland – úrslit dagsins í 1. deild karla

Elliði Snær Viðarsson er að gera það gott með Gummersbach í Þýskalandi. Mynd/Hafliði Breiðfjörð
- Auglýsing -

Sex leikir fóru fram í þýsku 1. deildinni í handknattleik í dag. Íslendingar komu við sögu í fimm þeirra.

Úrslit dagsins:
Gummmersbach – HC Erlangen 32:31 (14:17).

  • Elliði Snær Viðarsson skoraði sjö mörk og var markahæstur hjá Gummersbach. Hann lét einnig til sín taka í vörninni og var einu sinni vísað af leikvelli í tvær mínútur.
  • Hákon Daði Styrmisson skoraði ekki fyrir Gummersbach í leiknum.
  • Guðjón Valur Sigurðsson er þjálfari Gummersbach.
  • Ólafur Stefánsson er aðstoðarþjálfari HC Erlangen.

    SC Magdeburg – Bergischer HC 23:21 (8:10).
  • Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði fjögur mörk fyrir Magdeburg.
  • Arnór Þór Gunnarsson skoraði ekki fyrir Bergischer HC.

Füchse Berlin – Flensburg 37:33 (20:17).

  • Teitur Örn Einarsson kom kvefaður frá Íslandi eftir landsleik um síðustu helgi og var ekki með í leiknum í dag.

    THW Kiel – Hannover-Burgdorf 33:23 (20:14).
  • Heiðmar Felixson er aðstoðarþjálfari Hannover-Burgdorf.

    SC DHfK Leipzig – GWD Minden 31:31 (15:14).
  • Rúnar Sigtryggsson er þjálfari SC DHfK Leipzig.
  • Sveinn Jóhannsson skoraði fjögur mörk fyrir GWD Minden og var tvisvar sinnum vísað af leikvelli í tvær mínútur í hvort skipti.
    HSV Hamburg – HSG Wetzlar 24:21 (13:13).
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -