- Auglýsing -
Tjörvi Þorgeirsson leikmaður meistaraflokks Hauka í handknattleik var valinn íþróttamaður Hauka fyrir árið 2021 í gær í hófi sem félagið hélt í samkomusal sínum á Ásvöllum. Körfuknattleikskonan Lovísa Henningsdóttir varð fyrir valinu í kvennaflokki.
![](https://www.handbolti.is/wp-content/uploads/2021/06/m8QwXRdA-985x1024.jpeg)
Aron Kristjánsson þjálfari meistaraflokksliðs Hauka í handknattleik karla var valinn þjálfari ársins hjá félaginu.
Nánar má lesa um viðurkenningar þær sem afhentar voru í hófi Hauka í gær með því að smella hér.
- Auglýsing -