Áfram sitja Tryggvi Þórisson og liðsmenn Sävehof í efsta sæti sænsku úrvalsdeildarinnar þegar þráðurinn var tekinn upp í kvöld eftir hlé sem staðið hefur yfir frá 30. desember vegna Evrópumóts karla í handknattleik. Sävehof vann Alingsås á heimavelli, 33:27, eftir að hafa verið marki yfir að loknum fyrri hálfleik, 16:15.
Tryggvi skoraði ekki mark að þessu sinni fyrir Sävehof sem hefur 29 stig að loknum 17 leikjum og er þremur stigum ofar en Skövde sem er í öðru sæti.
Á brattann var að sækja hjá HF Karlskrona í heimsókn til Ystad í kvöld. Heimamenn unnu öruggan sigur, 40:30. Ólafur Andrés Guðmundsson skoraði þrjú mörk fyrir HF Karlskrona en Dagur Sverrir Kristjánsson og Þorgils Jón Svölu Baldursson skoruðu ekki að þessu sinni. Phil Döhler, fyrrverandi markvörður FH, stóð í marki HF Karlskrona hluta leiksins og varði fjögur skot, 20%.
Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði tvö fyrir Amo þegar liðið tapaði með átta marka mun fyrir Kristianstad, 32:24, á útivelli.
Karlskrona og Amo eru í 10. og 11. sæti af 14 liðum deildarinnar. Annað með 13 stig en hitt 12.
Nánar er hægt að kynna sér stöðuna í sænsku úrvalsdeildinni og fleiri deildum í evrópskum handknattleik með því að smella hér.