- Auglýsing -
HK, ÍBV og Íslands- og bikarmeistarar KA/Þórs eiga tvo leikmenn hvert í liði nóvembermánaðar sem tölfræðiveitan HBStatz tók saman úr gögnum sínum og birti í gær.
Marta Wawrzynkowska, markvörður, og vinstri hornakonan Harpa Valey Gylfadóttir frá ÍBV eru í liðinu ásamt Mörthu Hermannsdóttur og Rakel Söru Elvarsdóttur úr KA/Þór og Elnu Ólöfu Guðjónsdóttur og Jóhönnu Margréti Sigurðardóttur úr HK. Til viðbótar er Thea Imani Sturludóttir, leikmaður Vals í liðinu.
Varamenn í liðinu eru Sara Odden úr Haukum og Stjörnukonan Eva Björk Davíðsdóttir.
![](https://www.handbolti.is/wp-content/uploads/2021/12/262329279_3149088778680096_8017775448352794192_n-1024x1024.jpg)
- Auglýsing -