- Auglýsing -
- Auglýsing -

Tveir handboltamenn á meðal tíu efstu

Merki Samtaka íþróttafréttamanna.
- Auglýsing -

Tveir handknattleiksmenn eru að með tíu efstu í kjöri á Íþróttamanni ársins 2020 hjá Samtökum íþróttafréttamanna, SÍ. Í morgun var upplýst hvaða tíu íþróttamenn voru efstir í kjörinu að þetta árið en niðurstöðu þess verður lýst þriðjudagskvöldið 29. desember í beinni útsendingu á RÚV. Vegna samkomutakmarkanna fellur hið árlega hóf niður að þessu sinni.

Handknattleiksmennirnir Aron Pálmarsson hjá Barcelona á Spáni og Bjarki Már Elísson, Lemgo í Þýskalandi, eru í hinum eftirsótta hópi að þessu sinni. Aron er nú á meðal tíu þeirra efstu í kjöri Íþróttamanns ársins í áttunda skipti. Bjarki Már er á listanum í fyrsta sinn.

Aron Pálmarsson, landsliðsmaður er á meðal tíu efstu í kjöri Íþróttamanns ársins 2020. Mynd/EPA
Bjarki Már Elísson landsliðsmaður er á meðal tíu efstu í kjöri Íþróttamanns ársins 2020. Mynd/EPA


Eins og undanfarin ár verður lið ársins einnig heiðrað auk þjálfara ársins. Í því kjöri hlutu handknattleikþjálfarar eða lið ekki náð fyrir augum margra félagsmanna SÍ að þessu sinni.

Alls tóku 30 félagsmenn þátt í kjörinu í ár frá tíu fjölmiðlum, þar af fjórar konur og hafa þær aldrei verið fleiri innan SÍ en nú. Handbolti.is tók þátt í kjörinu í fyrsta sinn með einn fulltrúa af karlkyni.

Kraftlyftingamaðurinn Júlían J.K. Jóhannsson var kjörinn Íþróttamaður ársins 2019.

Átta ár eru liðin frá því að handknattleiksmaður var síðast kjörinn íþróttamaður ársins. Þá hreppti Aron Pálmarsson hnossið. Átta handknattleiksmenn hafa hlotið nafnbótina frá því að SÍ stóð fyrst að kjörinu 1956.

Íþróttamenn ársins úr handbolta:
1964 - Sigríður Sigurðardóttir
1968 - Geir Hallsteinsson
1989 - Alfreð Gíslason
1997 - Geir Sveinsson
2002 - Ólafur Stefánsson
2003 - Ólafur Stefánsson
2006 - Guðjón Valur Sigurðsson
2008 - Ólafur Stefánsson
2009 - Ólafur Stefánsson
2010 - Alexander Petersson
2012 - Aron Pálmarsson

Sjö karlar og þrjár konur eru að meðal tíu efstu að þessu sinni og eru átta úr röðum hópíþrótta og tveir úr einstaklingsgreinum.

Tíu efstu í stafrófsröð:
Anton Sveinn McKee, sund
Aron Pálmarsson, handknattleikur
Bjarki Már Elísson, handknattleikur
Glódís Perla Viggósdóttir, knattspyrna
Guðni Valur Guðnason, frjálsíþróttir
Gylfi Þór Sigurðsson, knattspyrna
Ingibjörg Sigurðardóttir, knattspyrna
Martin Hermannsson, körfuknattleikur
Sara Björk Gunnarsdóttir, knattspyrna
Tryggvi Snær Hlinason, körfuknattleikur
 
Þjálfarar:
Arnar Þór Viðarsson, knattspyrna
Elísabet Gunnarsdóttir, knattspyrna
Heimir Guðjónsson, knattspyrna
Lið:
Breiðablik kvenna knattspyrna
Ísland U21 karla knattspyrna
Ísland A-landslið knattspyrna

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -