- Auglýsing -
- Auglýsing -

Tveir Þórsarar áfram í sóttkví – aðrir eru frjálsir

Þórsarar fá Gróttumenn í heimsókn í Íþróttahöllina á Akureyri í dag. Mynd/Skapti Hallgrímsson, akureyri.net
- Auglýsing -

Vegna fréttar á handbolti.is í morgun um að karlalið Þórs á Akureyri í handknattleik sé í sóttkví eftir að einn leikmaður liðsins var í tengslum við smitaðan einstakling áður en hann fór á æfingu liðsins á þriðjudaginn hafði Magnús I. Eggertsson, formaður handknattleiksdeildar Þórs , samband við handbolti.is og vildi koma eftirfarandi á framfæri:

„Bara svona rétt til að segja þetta rétt, þá fórum við í sjálfskipaða sóttkví eftir æfingu á þriðjudag vegna smits hjá konu leikmanns.  Hann og annar aðili sem áttu í samneyti við hana fóru í próf í gær og var það neikvætt svo aðrir leikmenn eru lausir.  Þessir 2 leikmenn aftur á móti eru í 2 vikna sóttkví.“

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -