- Auglýsing -
- Auglýsing -

U18: Lokuðum fyrir allt flæði í sóknarleiknum

Ágúst Þór Jóhannsson, þjálfari, fer yfir málin með leikmönnum sínum í leikhléi í dag. Mynd/HSÍ
- Auglýsing -

„Það má segja að þetta hafi verið sannkallaður iðnaðarsigur,“ sagði Ágúst Þór Jóhannsson þjálfari U18 ára landsliðs kvenna í handknattleik þegar handbolti.is náði tali af honum rétt eftir að íslenska liðið hafði unnið Slóvena, 24:21, í fyrsta leik sínum í undankeppni Evrópumótsins í Belgrad í dag.

U18 ára liðið eftir sigurinn í dag. Í bakgrunni má sjá nokkra forráðamenn sem slógust með í för til Belgrad til að styðja við bakið á landsliðinu. Mynd/HSÍ

Sjötíu prósent af leiknum í vörn

„Fimm einn vörnin var mjög góð og með henni tókst okkur að loka fyrir allt flæði í sóknarleik Slóvena og hindra þar með þeirra bestu menn sem eru skytturnar. Um leið þá brutum við mjög mikið á slóvensku sóknarmönnunum enda stóðum við í vörn um sjötíu prósent af leiknum,“ sagði Ágúst Þór sem hafði á tíðum takmarkaða þolinmæði fyrir þeim mikla tíma sem leikmenn Slóvena fengu til þess að sækja að þessu sinni. Það reyndi mjög á einbeitingu varnarmanna íslenska liðsins.

Lokuðum á hraðaupphlaupin

„Varnarleikurinn okkar skilað mörgum hraðaupphlaupum og mörkum. Ég var hinsvegar ekki alveg nógu ánægður með hraðann á köflum í seinni bylgjunni. Að sama skapi þá skutum við vel úr okkar færum. Leikmenn skiluðu sér vel til baka sem varð til þess að okkur tókst að koma að mestu í veg fyrir hraðaupphlaup Slóvena sem er eitt af þeirra helstu vopnum,“ sagði Ágúst Þór sem þegar er farinn að leggja drög að næsta leik íslenska liðsins sem verður á móti Slóvakíu á morgun klukkan 14.30. Slóvakar leika við Serba síðar í dag.

Eigum meira inni

„Tvö góð stig og sannarlega gott að byrja mótið á sigri. Ég er þeirra skoðunar að meira búi í liðinu en það sýndi í dag og þá ekki síst með jafnari frammistöðu. Slóvakar verða erfiðir á morgun, á því leikur enginn vafi. En byrjunin var góð með tveimur stigum,“ sagði Ágúst Þór Jóhannsson, þjálfari U18 ára landsliðs kvenna í handknattleik við handbolta.is.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -