- Auglýsing -
Íslenska kvennalandsliðið í handknattleik, skipað leikmönum 18 ára og yngri hefur unnið tvo fyrstu leiki sína í undankeppni EM2023 í Belgrad í Serbíu, 24:21 á móti Slóveníu og 29:26 í leik við Slóvakíu í dag. Þar með stendur liðið frammi fyrir úrslitaleik við Serba á fimmtudaginn kl. 17. Serbar hafa einnig unnið tvo fyrstu leiki sína, síðast í dag lið Slóveníu, 27:22.
Eftir leikinn í dag skipti íslenski hópurinn um hótel þar sem vonandi fer vel um leikmenn, þjálfara og starfsmenn fram á föstudag þegar að haldið verður heim.
Hin þrautreynda handknattleikskona, Guðríður Guðjónsdóttir, er fararstjóri hópsins. Hún sendi handbolta.is nokkrar myndir frá viðburðaríkum degi hjá frábæru liði. Efstu myndirnar eru frá því að stelpurnar komu á annað hótel síðdegis. Aðrar eru frá því fyrir leik og eftir.

















- Auglýsing -